
Drangsskarð og Hádegisskarð





Nýjar glæsilegar hæðir í Skarðshlíðinni
Glæsilegar og einstaklega vel útbúnar og vandaðar 112 fm hæðir þar sem mikið er lagt í allan frágang að innan sem utan. Íbúðirnar hafa glugga í 3 áttir og eru einstaklega bjartar. Efri íbúðirnar koma með svalalokun. Eignirnar eru í Svansvottunarferli,
Í íbúðunum eru tvö svefnherbergi en gert er ráð fyrir og lítið mál er að bæta því þriðja við. Baðherbergi með rúmgóðri sturtu, Stórar bjartar stofur, Eldhús með eldunareyju og Dekton quartz steinn á borðum, Þvottahús og geymsla innan íbúðar. Fullkomið loftræstikerfi er í hverri íbúðum.
Húsið skilast fullbúið að utan ásamt fullfrágenginni lóð og bílastæðum. Íbúðirnar skilast fullkláraðar að innan með gólfefnum í öllum rýmum.
ATH!. Sumar myndir eru tölvuteiknaðar og eru aðeins til að sýna hvernig íbúðin gæti litið út innréttuð.


.jpg)